Heimastjórn

Hinn 1. febrúar 2004 voru liðin 100 ár frá því að Íslendingar fengu heimastjórn, þingræði var fest í sessi og  Stjórnarráð Íslands stofnað. Ráðherra Íslands fékk aðsetur í Reykjavík, sem varð miðstöð stjórnsýslu. Flutningur framkvæmdavaldsins til Íslands 1. febrúar 1904 markaði þáttaskil og var stærsta skrefið í baráttu þjóðarinnar fyrir sjálfstæði.

Fyrsti ráðherrann Hannes Hafstein var þjóðkunnur, sýslumaður á Ísafirði og eitt ástsælasta skáld þjóðarinnar.

Heimasíðan er sett upp í tilefni þessara tímamóta. Á henni má finna fjölmargt sem tengist heimastjórnarárunum 1904-1918, einu mesta framfaraskeiði þjóðarinnar, kvikmyndir og yfir 100 ljósmyndir.

 
 

Leita:



 


 
efnisyfirlit síðunnar