Guðmundur Björnsson
tók sér ættarnafnið Björnson 1915
F. í Gröf í Víðidal 12. okt. 1864, d. 7. maí 1937. For.: Björn Leví Guðmundsson (f. 14. febr. 1834, d. 23. sept. 1927) síðar bóndi á Marðarnúpi í Vatnsdal og k. h. Þorbjörg Helgadóttir (f. 6. nóv. 1839, d. 28. apríl 1929) húsmóðir. K. 1. (27. apríl 1895) Guðrún Sigurðardóttir (f. 31. des. 1864, d. 29. jan. 1904) húsmóðir. For.: Sigurður Björnsson og k. h. Margrét Dóróthea Bjarnadóttir. K. 2. (14. ágúst 1908) Margrét Magnúsdóttir Stephensen (f. 5. ágúst 1879, d. 15. ágúst 1946) húsmóðir. For.: Magnús Stephensen alþm. og landshöfðingi og k. h. Elín Jónasdóttir Stephensen, f. Thorstensen. Börn Guðmundar og Guðrúnar: Sigfús (1895), Solveig Þorbjörg (1896), Björn Bergmann (1898), Gunnlaugur Briem (1899), Jóhann Hendrik (1900), Ólöf (1902), Gunnar (1904). Börn Guðmundar og Margrétar: Magnús Stephensen (1909), Gunnlaugur Björnsson (1912), Jónas Ólafur (1914), Stefán Eggert (1916), Glúmur (1918), Þórdís Ósk (1922).
Stúdentspróf Lsk. 1887. Læknisfræðipróf Hafnarháskóla 1894. Framhaldsnám í sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn 1894.
Starfandi læknir í Reykjavík 1894-1895. Jafnframt kennari við Læknaskólann 1894-1895 í stað Schierbecks landlæknis í orlofi hans. Héraðslæknir í Reykjavík 1895-1906 og jafnframt kennari við Læknaskólann. Landlæknir og forstöðumaður Læknaskólans 1906, jafnframt ljósmæðrakennari. Prófessor við læknadeild Háskólans 1911. Orlof frá landlæknisstörfum 30. sept. 1921 um sex mánaða skeið, en jafnframt falið að undirbúa framkvæmd laga um varnir gegn berklaveiki. Lausn frá embætti 1931.
Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1900-1906. Í stjórn holdsveikraspítalans í Laugarnesi frá upphafi hans 1898. Skip. 1913 formaður fánanefndar. Kosinn 1915 í velferðarnefnd. Skip. 1917 formaður verðlagsnefndar og mþn. í fossamálum og 1922 í orðunefnd og átti sæti í henni til æviloka. Í bankaráði Íslandsbanka 1919-1930. Formaður Slysavarnafélags Íslands frá stofnun þess 1928-1932.
Alþm. Reykv. 1905-1908, kgk. alþm. 1913-1915, landsk. alþm. 1916-1922 (Heimastjfl., Sambfl., Heimastjfl.).
Forseti Ed. 1916-1922. Milliþingaforseti Ed. 1915.
Samdi margar greinar og bæklinga um lækningar og heilbrigðismál og ýmis önnur áhugamál sín, gaf út ljóðabók: Undir ljúfum lögum, með höfundarnafninu Gestur.
Af vef Alþingis - www.althingi.is


