Hannes Þorsteinsson

Hannes Þorsteinsson 1860-1935F. á Brú í Biskupstungum 30. ágúst 1860, d. 10. apríl 1935. For.: Þorsteinn Narfason (f. 31. júlí 1830, d. 12. júní 1904) bóndi þar og k. h. Sigrún Þorsteinsdóttir (f. 7. sept. 1838, d. 5. apríl 1894) húsmóðir. K. (18. des. 1889) Jarþrúður Jónsdóttir (f. 28. sept. 1851, d. 16. apríl 1924) húsmóðir. For.: Jón Pétursson alþm. og 1. k. h. Jóhanna Sofía Bogadóttir.Stúdentspróf Lsk. 1886. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1888. Heiðursdoktor Háskóla Íslands 1925.
Stundaði kennslu í Reykjavík 1888-1891. Ritstjóri í Reykjavík 1892-1909. Vann að ritstörfum og fræðistörfum 1910-1911. Settur 1911 dósent í íslenskri sögu við Háskóla Íslands. Aðstoðarskjalavörður við Þjóðskjalasafnið 1912- 1924. Þjóðskjalavörður 1924-1935. Ráðunautur hins íslenska hluta ráðgjafarnefndar sumarið 1925 við endurheimt íslenskra skjala úr söfnum í Kaupmannahöfn. Hafði frá 1911 styrk frá Alþingi til að semja ævisögur lærðra manna.
Yfirskoðunarmaður landsreikninga 1902-1909. Átti sæti í verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar 1909-1913 og frá 1917 til æviloka. Settur 1. des. 1909 gæslustjóri við Landsbankann til 5. jan. 1910. Forseti Sögufélagsins frá 1924 til æviloka.

 Forseti Nd. 1909-1911.

 Ritaði ýmislegt um sögu Íslendinga og ættfræði og tók saman mikinn fróðleik um ævi lærðra manna íslenskra. Endurminningar sínar ritaði hann á árunum 1926-1928 og mælti svo fyrir að þær skyldu geymast innsiglaðar fram að 100 ára afmælisdegi hans. Þær birtust á prenti 1962.
Ritstjóri: Huld (1890-1898). Þjóðólfur (1892-1909). Íslenskir sagnaþættir (1900-1911). Blanda (1918-1934).

Af vef Alþingis - www.althingi.is

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar