Júlíus Havsteen
F. á Akureyri 13. ágúst 1839, d. 3. maí 1915. For.: Jóhann Godtfred Havsteen (f. 3. mars 1804, d. 30. jan. 1884) kaupmaður þar, bróðir Péturs Havsteins amtmanns og alþm., og k. h. Sophie Jacobine Havsteen, f. Thyrrestrup (f. 12. apríl 1814, d. 1. ágúst 1881) húsmóðir. K. (12. júní 1880) Johanne Margrethe Havsteen, f. Westergaard (f. 19. nóv. 1853, d. 31. des. 1931) húsmóðir. For.: Otto Westergaard og k. h. Anna Westergaard, f. Nielsen. Börn: Helga (1881), Otto Jakob (1884).
Stúdentspróf Lsk. 1859. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1866.
Dvaldist heima hjá foreldrum sínum á Akureyri uns hann réðst vorið 1867 fulltrúi amtmannsins í Holbæk á Sjálandi, gegndi því starfi til 1870, er hann varð aðstoðarmaður í íslensku stjórnardeildinni í Kaupmannahöfn. Amtmaður í norður- og austuramtinu 1881-1893, í suður- og vesturamtinu 1894-1904. Sat á Akureyri meðan hann var amtmaður nyrðra, en fluttist síðan til Reykjavíkur og átti þar heima til æviloka. Skip. 1904 forseti amtsráðs suðuramtsins og gegndi því embætti þar til amtsráðin voru lögð niður 1907.
Bæjarfulltrúi á Akureyri 1885-1893. Formaður samskota- og hjálparnefndar vegna jarðskjálftanna í Ölfusi 1896. Formaður yfirstjórnar Holdsveikraspítalans í Laugarnesi 1898-1908. Endurskoðandi Íslandsbanka í Reykjavík frá stofnun hans 1904 til æviloka. Gæslustjóri Söfnunarsjóðs frá 1905 til æviloka.
Kgk. alþm. 1887-1893 og 1899-1915 (Heimastjfl., Sambfl., Heimastjfl.).
Forseti Ed. 1905-1907 og 1912. Varaforseti Sþ. 1901-1903, 2. varaforseti Ed. 1911, 1. varaforseti Ed. 1914. Milliþingaforseti Ed. 1913-1914.
Ritstjóri: Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands (1875).
Af vef Alþingi - www.althingi.is


