Lárus H. Bjarnason

Lárus H. Bjarnason 1866-1934F. í Flatey á Breiđafirđi 27. mars 1866, d. 30. des. 1934. For.: Hákon Bjarnason (f. 11. sept. 1828, d. 2. apríl 1877) kaupmađur á Bíldudal og k. h. Jóhanna Kristín Ţorleifsdóttir (f. 16. des. 1834, d. 11. jan. 1896) húsmóđir. Bróđir Ingibjargar H. Bjarnason alţm. K. (3. ágúst 1895) Elín Pétursdóttir Bjarnason, f. Havstein (f. 2. febr. 1869, d. 26. ágúst 1900) húsmóđir. For.: Pétur Havstein alţm. og 3. k. h. Kristjana Gunnarsdóttir Havstein. Systir Hannesar Hafsteins alţm. og ráđherra, systurdóttir Eggerts alţm. og Tryggva alţm. Gunnarssona. Börn: Jóhanna Kristín (1896), Pétur Hafsteinn (1897).
 Stúdentspróf Lsk. 1885. Lögfrćđipróf Hafnarháskóla 1891.
 Málaflutningsmađur viđ landsyfirréttinn 1891-1892. Settur sýslumađur í Ísafjarđarsýslu og bćjarfógeti á Ísafirđi 1892. Sýslumađur í Snćfellsnes- og Hnappadalssýslu 1894-1908, sat í Stykkishólmi. Forseti amtsráđs vesturamtsins frá 1904 til ársloka 1907, er amtsráđin voru lögđ niđur. Skip. 1908 forstöđumađur Lagaskólans í Reykjavík. Prófessor í lögfrćđi viđ Háskóla Íslands 1911- 1919, rektor 1913-1914. Skip. 1. des. 1919 dómari í Hćstarétti, lausn 1931. Prófdómari í lagadeild Háskóla Íslands 1924-1934.
 Skip. 1904 í mţn. í kirkjumálum. Átti sćti í bankaráđi Íslandsbanka 1904- 1911 og 1915-1917. Átti sćti í millilandanefndinni 1907. Bćjarfulltrúi í Reykjavík 1908-1914. Endurskođandi landsreikninganna 1910-1911. Skip. 9. nóv. 1918 í hjálparnefndina, er spánska veikin geisađi í Reykjavík. Skip. 4. nóv. 1924 formađur mţn. um sparnađ í ríkisrekstri.

Alţm. Snćf. 1900-1908, kgk. alţm. 1908-1911, alţm. Reykv. 1911-1913 (Heimastjfl.).
Varaforseti Sţ. 1905- 1907.

Samdi bćkur og greinar um lögfrćđi.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síđunnar