Klemens Jónsson
F. á Akureyri 27. ágúst 1862, d. 20. júlí 1930. For.: Jón Borgfirðingur (f. 30. sept. 1826, d. 20. okt. 1912) síðar lögregluþjónn og fræðimaður í Reykjavík og k. h. Anna Guðrún Eiríksdóttir (f. 8. febr. 1828, d. 10. apríl 1881) húsmóðir. Tengdafaðir Tryggva Þórhallssonar alþm. og ráðherra. K. 1. (6. júlí 1889) Þorbjörg Stefánsdóttir (f. 3. júní 1866, d. 30. jan. 1902) húsmóðir. For.: Stefán Bjarnarson og k. h. Karen Emilie Bjarnarson, f. Jörgensen. Systir Bjarnar Bjarnarsonar sýslumanns og alþm. og Camillu konu Magnúsar Torfasonar sýslumanns og alþm. K. 2. (16. okt. 1908) Anna María Jónsson, f. Schiöth (f. 1. júní 1879, d. 8. nóv. 1961) húsmóðir. For.: Peter Frederik Hendrik Schiöth og k. h. Anna Cathrine, f. Larsen. Börn Klemensar og Þorbjargar: Anna Guðrún (1890), Karen Emilie (1893), Agnar Stefán (1896). Börn Klemensar og Önnu: Agnar Klemens (1909), Alma Valborg (1910).
Stúdentspróf Lsk. 1883. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1888.
Dvaldist í Reykjavík 1888-1889 við ýmis störf. Aðstoðarmaður í íslensku stjórnardeildinni í Kaupmannahöfn 1889-1891. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akureyri 1891-1904. Settur amtmaður í norður- og austuramtinu 1894. Landritari 1904-1917, er embættið var lagt niður. Vann síðan að sögurannsóknum og ritstörfum. Skip. 7. mars 1922 atvinnu- og samgöngumálaráðherra, skip. 18. apríl 1923 jafnframt fjármálaráðherra í stað Magnúsar Jónssonar, sem lét af því embætti daginn áður, lausn 5. mars 1924, en gegndi störfum áfram til 22. mars.
Formaður heilsuhælisfélagsins, sem kom upp Vífilsstaðahæli. Skip. 1907 formaður mþn. í skattamálum. Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1908-1914. Skip. 1908 formaður stjórnar holdsveikraspítalans í Laugarnesi. Skip. í peningamálanefnd 1910, formaður mþn. um rannsókn á fjármálum landsins 1911. Yfirmaður Oddfellow-reglunnar á Íslandi um langt skeið. Skip. 1918 í íslensk-breska viðskiptanefnd. Gæslustjóri Söfnunarsjóðs 1918-1922. Sat í orðunefnd 1921- 1922 og frá 1925 til æviloka. Í bankaráði Íslandsbanka 1924-1930.
Alþm. Eyf. 1892-1904 (sat ekki þing 1894), alþm. Rang. 1923-1927 (Heimastjfl., Framsfl.).
Umboðsmaður ráðherra á Alþingi 1907, 1909, 1913 og 1914. Atvinnumálaráðherra 1922-1924, jafnframt fjármálaráðherra 1923-1924.
Forseti Nd. 1901-1903.
Ritaði um margs konar lögfræðiefni og ýmsa þætti í sögu Íslendinga.


