Ólafur Ólafsson
F. í Viðey 24. sept. 1855, d. 26. nóv. 1937. For.: Ólafur Ólafsson (f. 20. júní 1831, d. 12. nóv. 1911) síðar bæjarfulltrúi í Lækjarkoti í Reykjavík og 1. k. h. Ragnheiður Þorkelsdóttir (f. 3. apríl 1833, d. 7. sept. 1882) húsmóðir. K. (7. sept. 1880) Guðríður Guðmundsdóttir (f. 21. nóv. 1853, d. 7. jan. 1940) húsmóðir. For.: Guðmundur Johnsen og k. h. Guðrún Georgsdóttir Hjaltested. Sonur: Guðmundur (1881).
Stúdentspróf Lsk. 1877. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1880.
Kennari í Barðastrandarsýslu 1877-1878. Fékk Selvogsþing 1880, Holtaþing 1884, sat í Guttormshaga, fékk Arnarbæli í Ölfusi 1893, lausn frá fardögum 1903. Gerðist prestur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík 1903 og forstöðumaður (prestur) utanþjóðkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði 1913. Lét af prestsstörfum í Reykjavík 1922 og í Hafnarfirði 1930. Prestur við sjúkrahúsið að Kleppi. Kenndi mörgum piltum undir skóla.
Alþm. Rang. 1891-1892, alþm. A.-Skaft. 1900-1901, alþm. Árn. 1903-1908 (Framffl., Framsfl. eldri, Þjóðrfl.).
Ritstjóri: Fjallkonan (1902-1904).


