Páll Briem

Páll Briem 1856-1904F. á Espihóli í Eyjafirði 19. okt. 1856, d. 17. des. 1904. For.: Eggert Briem (f. 15. okt. 1811, d. 11. mars 1894) þfm. og k. h. Ingibjörg Eiríksdóttir Briem (f. 16. sept. 1827, d. 15. sept. 1890) húsmóðir. Bróðir Eiríks alþm., Gunnlaugs alþm. og Ólafs alþm. Briems. K. 1. (20. mars 1886) Kristín Guðmundsdóttir Briem (f. 13. mars 1865, d. 24. okt. 1887) húsmóðir. For.: Guðmundur Guðmundsson og k. h. Anna Pálsdóttir. K. 2. (21. júní 1895) Álfheiður Helga Helgadóttir Briem (f. 11. nóv. 1868, d. 28. sept. 1962) húsmóðir. For.: Helgi Hálfdanarson alþm. og k. h. Þórhildur Tómasdóttir. Sonur Páls og Kristínar: Kristinn (1887). Börn Páls og Álfheiðar: Þórhildur (1896), Eggert Ólafur (1898), Friede Ingibjörg (1900), Helgi (1902), Kristín Þórdís (1904).

 Stúdentspróf Lsk. 1878. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1884.
Var fulltrúi hjá yfirréttarmálaflutningsmanni í Kaupmannahöfn 1884-1885.

Hlaut 1885 styrk úr landssjóði til rannsókna á íslenskum lögum og vann að þeim í Reykjavík og Kaupmannahöfn 1885-1886. Sýslumaður í Dalasýslu 1886-1887, sat að Staðarfelli. Málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1887-1890. Sýslumaður í Rangárvallasýslu 1890-1894, sat fyrst í Odda, en síðan í Árbæ í Holtum. Skip. frá 12. sept. 1894 amtmaður í norður- og austuramtinu, fluttist þá til Akureyrar, lausn með biðlaunum 1. ágúst 1904, er amtmannsembættin voru lögð niður. Varð þá bankastjóri við Íslandsbanka og fluttist til Reykjavíkur.
Skrifstofustjóri Alþingis 1885. Bæjarfulltrúi á Akureyri 1897-1900 og 1903- 1904. Hvatamaður að stofnun Ræktunarfélags Norðurlands og formaður þess 1903-1904. Samdi frumvarp til stofnlaga um Búnaðarfélag Íslands. Sat á Búnaðarþingi 1901. Yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1887 og 1889. Skip. 1901 formaður mþn. í fátækramálum.

 Alþm. Snæf. 1887-1892. Kosinn alþm. Ak. 1904, en dó áður en þing kom saman.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar