Skúli Thoroddsen
F. í Haga á Barðaströnd 6. jan. 1859, d. 21. maí 1916. For.: Jón Thoroddsen (f. 5. okt. 1818, d. 8. mars 1868) sýslumaður og skáld og k. h. Kristín Ólína Þorvaldsdóttir, f. Sívertsen (f. 24. júní 1833, d. 27. nóv. 1879) húsmóðir, dóttir Þorvalds Sívertsens alþm. (Ættarskrá XV.) Bróðir Þórðar Thoroddsens alþm., faðir Skúla, Katrínar og Sigurðar alþm. Thoroddsens og Ragnhildar konu Pálma Hannessonar alþm. K. (11. okt. 1884) Theodora Friðrika Guðmundsdóttir Thoroddsen (f. 1. júlí 1863, d. 23. febr. 1954) húsmóðir og skáld. For.: Guðmundur Einarsson alþm. og k. h. Katrín Ólafsdóttir, dóttir Ólafs Sívertsens alþm. Börn: Unnur (1885), Guðmundur (1887), Þorvaldur (1888), Skúli (1890), Þorvaldur (1892), Kristín Ólína (1894), Katrín (1896), Jón (1898), Ragnhildur (1899), Bolli (1901), Sigurður (1902), Sverrir (1904), María Kristín (1906).
Stúdentspróf Lsk. 1879. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1884.
Settur málaflutningsmaður við landsyfirdóminn 1. ágúst 1884. Sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði 1884-1892. Vikið frá 1892. Lausn með eftirlaunum 1895. Stjórnaði kaupfélagi á Ísafirði 1888-1901, það annaðist m. a. saltfisksölu til Miðjarðarhafslanda. Rak verslun á Ísafirði 1895-1915. Ritstjóri og bóndi á Bessastöðum á Álftanesi 1901-1908 og rak þar prentsmiðju. Fluttist til Reykjavíkur 1908 og átti þar heima síðan.
Skip. í milliþinganefndina 1907. Yfirskoðunarmaður landsreikninga 1908- 1913. Í mþn. í launamálum 1914. Í velferðarnefnd 1915.
Alþm. Eyf. 1890-1892, alþm. Ísf. 1892-1902, alþm. N.-Ísf. 1903-1915 (Framffl., Framsfl. eldri, Þjóðrfl., Sjálfstfl. eldri).
Forseti Sþ. 1909-1911. Varaforseti Nd. 1901, varaforseti Sþ. 1909.
Ævisögu hans hefur ritað Jón Guðnason: Skúli Thoroddsen, tvö bindi (1968 og 1974).
Ritstjóri: Þjóðviljinn (1887-1891). Þjóðviljinn ungi (1892-1899). Þjóðviljinn (1901-1915). Fram (1898). Sköfnungur (1902). Norður-Ísfirðingur (1911).


