Valtýr Guðmundsson

Valtýr Guðmundsson 1860-1928F. á Árbakka á Skagaströnd 11. mars 1860, d. 23. júlí 1928. For.: Guðmundur Einarsson (f. 27. des. 1823, d. 5. jan. 1865) sýsluskrifari á Ytri-Ey og Geitaskarði og Valdís Guðmundsdóttir (f. 3. okt. 1834, d. 25. mars 1923). K. (18. ágúst 1889) Anna Jóhannesdóttir (f. 18. ágúst 1850, d. 28. júlí 1903) húsmóðir. For.: Jóhannes Guðmundsson og k. h. Maren Lárusdóttir Thorarensen. Systir Jóhannesar Jóhannessonar alþm.
Stúdentspróf Lsk. 1883. Mag. art. Hafnarháskóla 1887. Dr. phil. þar 1889.
Kennari (dósent) í íslenskri sögu og bókmenntum við Hafnarháskóla frá 1. apríl 1890. Prófessor í íslenskri sögu og bókmenntum frá 1920. Stofnandi Eimreiðarinnar og ritstjóri.

Alþm. Vestm. 1894- 1901, alþm. G.-K. 1903-1908, alþm. Seyðf. 1911- 1913 (Framffl., Framsfl. eldri, Þjóðrfl., Ufl., Sambfl., Ufl.). Kosinn alþm. Seyðf. 1908, en kosningin kærð og kjörbréf ekki samþykkt.
2. varaforseti Nd. 1913.

Samdi rit og greinar um íslenska málfræði, sögu og bókmenntir.
Ritstjóri: Eimreiðin (1895-1917).

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar