Tryggvi Gunnarsson

Tryggvi Gunnarsson 1835-1917F. í Laufási við Eyjafjörð 18. okt. 1835, d. 21. okt. 1917. For.: Gunnar Gunnarsson (f. 24. jan. 1781, d. 24. júlí 1853) prestur þar og k. h. Jóhanna Kristjana Gunnlaugsdóttir Briem (f. 14. nóv. 1813, d. 23. okt. 1878) húsmóðir, hún átti síðar Þorstein Pálsson alþm. Bróðir Eggerts Gunnarssonar alþm. K. (30. júní 1859) Kristín Halldóra Þorsteinsdóttir (f. 12. des. 1837, d. 7. mars 1875) húsmóðir. For.: Þorsteinn Pálsson alþm. og 1. k. h. Valgerður Jónsdóttir. Fósturdóttir Tryggva og Halldóru: Valgerður Jónsdóttir (1863), kona Þórhalls Bjarnarsonar alþm. Sonur Tryggva og Jóhönnu Margrétar Jónsdóttur: Ólafur (1890). Dætur Tryggva og Helgu Jónasdóttur: Lilý Guðrún (1912), Áslaug (1916), Þórunn Anna María (1917).
Nam trésmíðar hjá móðurbróður sínum Ólafi Briem þfm. og timburmeistara á Grund 1850-1853. Dvaldist í Kaupmannahöfn veturinn 1863-1864 og lærði þá m. a. ljósmyndun, fór þaðan til Noregs og var þar um tíma á búnaðarskólanum í Ási.
Sendur til Reykjavíkur sumarið 1858 í verslunarerindum fyrir Höfðhverfinga og seldi þá kaupmönnum syðra skipsfarm af eyfirskum afurðum og tók vörur norður í staðinn. Bóndi á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal 1859-1873. Stofnandi Gránufélagsins og kaupstjóri þess 1871-1893. Fluttist til Kaupmannahafnar 1873. Bankastjóri Landsbankans í Reykjavík 1893-1909, var þá vikið frá, en Alþingi ákvað síðan að hann nyti fullra eftirlauna til æviloka.
Hreppstjóri í Hálshreppi 1865-1868, þá vék mágur hans Pétur Havstein amtmaður honum frá. Í móttökunefnd vegna konungskomu 1874 og aftur 1907. Þingkjörinn umsjónarmaður með byggingu alþingishússins 1879-1881. Forseti Þjóðvinafélagsins 1880-1911 og 1914-1917. Sá um byggingu Ölfusárbrúar 1891. Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1897-1908 og 1910-1916. Stofnandi Dýraverndarfélags Íslands 1914 og formaður þess frá stofnun til æviloka. Alþingisgarðurinn var að miklu leyti handaverk hans og þar kaus hann sér legstað.

Alþm. N.-Þing. 1869- 1874 (sat ekki á þingi 1871 og 1873), alþm. S.-Múl. 1874-1885, alþm. Árn. 1894-1900, alþm. Reykv. 1900-1908 (Heimastjfl.).
Varaforseti Sþ. 1881 og 1894, varaforseti Nd. 1883-1885 og 1895, 2. varaforseti Nd. 1907.

Ævisaga Tryggva er til í fjórum bindum: Tryggvi Gunnarsson, höfundar Þorkell Jóhannesson og Bergsteinn Jónsson (1955, 1965, 1972 og 1990).
Ritstjóri: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags (1880-1911 og 1914-1917). Dýravinurinn (1885-1916).

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar