Myndbönd og fréttir

Forsætisráðherrar Íslands - ráðherrar Íslands og forsætisráðherrar í 100 ár.

Fyrsta eintak ritsins Forsætisráðherrar Íslands ? ráðherrar Íslands og forsætisráðherrar í 100 ár var afhent Davíð Oddssyni forsætisráðherra í Þjóðmenningarhúsi þriðjudaginn 14. september 2004. Ritið var gefið út í tilefni 100 ára afmælis heimastjórnar.

Lesa meira
 

Hvar er jafnréttið?

Árni Magnússon félagsmálaráðherra flutti ávarp.Málþing í Salnum í Kópavogi var haldið þann 17. mars 2004 í tilefni 100 ára afmæli heimastjórnar í samstarfi forsætisráðuneytis, Kvenréttindafélags Íslands og Háskóla Íslands; Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Lesa meira
 

Hannes Hafstein og heimastjórnarárin í Eyjafirði

Sýning á munum og skjölum í Amtsbókasafninu á Akureyri

Lesa meira
 

Saga Stjórnarráðs Íslands 1964-2004 afhent í Þjóðmenningarhúsinu

Frá útgáfu bókar um Stjórnarráð ÍslandsBjörn Bjarnason, dómsmálaráðherra, afhenti forsætisráðherra Davíð Oddssyni fyrstu bindi sögu Stjórnarráðs Íslands 1964-2004 í tilefni 100 ára afmælis heimastjórnar á Íslandi þann 1. febrúar síðastliðinn. Þrjú bindi koma út á árinu og voru tvö fyrri bindin afhent ráðherra. Agnar Klemens Jónsson skrifaði sögu stjórnarráðsins 1904-1964 og er hið nýja verk framhald þess.

Lesa meira
 

Sólin gleymdi dagsins háttatíma

Leikarar fluttu brot úr leikritum, lásu ljóð og flyttu ýmsa texta frá árunum 1904 ? 1918 á hátíðarsýningu í Þjóðleikhúsinu 30. janúar.

Lesa meira
 

Skrifborð Hannesar Hafstein

Guðni Ágústsson og Guðríður Sigurðardóttir við afhendingu skrifborðs Hannesar HafsteinÞann 12. janúar 2004 afhenti Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, Þjóðmenningarhúsinu til varðveislu skrifborð Hannesar Hafstein, fyrsta íslenska ráðherrans.  Guðríður Sigurðardóttir, forstöðumaður Þjóðmenningarhúss tók við skrifborðinu en það er í anddyri á 1. hæð hússins.

Lesa meira
 

Sýningin Heimastjórn 1904 í Þjóðmenningarhúsi

Við opnun sýningar Þjóðmenningarhússins1. febrúar 1904 markaði tímamót í sjálfstæðisbaráttu Íslands við Danmörku. Heimastjórn, fyrsta íslenska landsstjórnin, sem fór með sérmál Íslands í umboði Alþingis, var stofnuð og með henni komst á þingræði í landinu. Skjaldarmerki Íslands varð samkvæmt konungsúrskurði hvítur fálki á bláum feldi. Heimastjórnartímabilið náði til 1. desember 1918.

Lesa meira
 

Sýning í Landsbókasafni Íslands ?Háskólabókasafni, Þjóðarbókhlöðu

Heimastjórn 100 ára Land mitt. Þú ert sem órættur draumur, óráðin gáta, fyrirheit. Svo orti Hannes Hafstein í upphafi árs 1909 á skipsfjöl er hann kom af konungsfundi. Þjóðin hafði þá hafnað tillögum í sambandsmálinu sem Hannes hafði bundið miklar vonir við, og nú var framtíðin í sjálfstæðismálinu óráðin. Hannes Hafstein stóð í fremstu röð íslenskra stjórnmála á einum mestu umskiptatímum í sögu íslenskrar þjóðar.

Lesa meira
 

Myntbréf og frímerki í tilefni aldarafmælis heimastjórnar á Íslandi

Frímerki útgefið í tilefni hátíðarhaldanna
Íslandspóstur minntist aldarafmælis heimastjórnar á Íslandi með veglegri útgáfu frímerkja og myntbréfs þann 15. janúar síðastliðinn. Upphaf heimastjórnar 1904 er ásamt fullveldi á grundvelli konungssambands við Dani 1918 og stofnun íslenska lýðveldisins 1944 mikilvægasti áfanginn í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 20. öldinni. Í tilefni afmælisins komu út frímerki og smáörk með mynd af Hannesi Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands. Á smáörkinni var hvíti Íslandsfálkinn í silfurlit á bláum grunni. Fálkinn var skjaldarmerki Íslands frá 1903-1919. Þetta var í fyrsta sinn sem silfur var notað sem fimmti litur við prentun frímerkja á Íslandi. Verðgildi smáarkar og frímerkis er 150 krónur.

Lesa meira
 

Vefsíða heimastjórnar 1904-1918

Davíð Oddson opnar www.heimastjórn.isDavíð Oddsson, forsætisráðherra, opnaði í dag vefsíðu í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því Íslendingar fengu heimastjórn. Athöfnin fór fram í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Íslendingar tóku stjórn eigin mála í hendur árið 1904, þingræði var fest í sessi og Stjórnarráð Íslands stofnað. Reykjavík varð höfuðborg Íslands. Flutningur framkvæmdavaldsins til landsins markaði þáttaskil og var stærsta skrefið í baráttu þjóðarinnar fyrir fullveldi.

Lesa meira
 

Minnisvarði um Hannes Hafstein afhjúpaður á Ísafirði

Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, afhjúpaði minnisvarða um Hannes Hafstein við Fischershús að Mánagötu 1 á Ísafirði, laugardaginn 17. janúar.

Lesa meira
 

 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar