Myndbönd og fréttir

Málþing um Hannes Hafstein á Möðruvöllum

Möðruvalla kirkjaMálþing um Hannes Hafstein verður haldið í Möðruvallakirkju á laugardag 14. febrúar og hefst kl. 13:30. Hannes Hafstein var fæddur og uppalinn á Möðruvöllum í Hörgárdal. Bjarni Guðleifsson, náttúrufræðingur á Möðvurvöllum fjallar um æsku Hannesar og Möðvuvelli sem á þeim tíma var stórbýli og amtsmannssetur. Björn Teitsson Teitsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri og fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, fjallar umaðdraganda heimastjórnar og heimastjórnarárin 1914-1918. Páll Valsson, útgáfustjóri Máls og menningar fjallar um skáldið Hannes Hafstein.

Á milli erinda verða umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri er Þorlákur Axel Jónsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri.

Amtsbókasafnið á Akureyri í samvinnu við menningarmálanefnd Akureyrar og forsætisráðuneytið standa að málþinginu.

Fyrirlestur Bjarna E. Guðleifssonar

Fyrirlestur Bjarna E. Guðleifssonar (power point)

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar