Myndbönd og fréttir

Sýning í Safnahúsinu á Ísafirði

Í tilefni 100 ára afmælis heimastjórnar, verður opnuð sýning í Safnahúsinu á Ísafirði sunnudaginn 15. febrúar kl. 15:00. Þar verða skjöl og munir frá sýslumannstíð Hannesar Hafstein á Ísafirði og einnig fjallað um dr. Valtý Guðmundsson sem í lok 19. aldar tók um baráttu fyrir íslenskum ráðherra.

Sýningin fjallar um ár Hannesar Hafstein á Ísafirði og pólitíkina. Hannes var sýslumaður Ísfirðingar 1986-1904 þegar hann varð ráðherra. Hann var þingmaður Ísfirðinga 1900-1901, en féll þá af þingi og var þingmaður Eyfirðinga 1903-1915 og landskjörinn 1915 og sat á þingi til 1917 að hann lét af þingmennsku sökum heilsubrests. Hannes varð foringi heimastjórnarmanna 1901 og ráðherra 1904 þegar þjóðin fékk langþráða heimastjórn. Meðal sýningargripa er fálkafáninn, einkennisfáni heimastjórnaráranna. Einstæður gripur sem dreginn var að húni í Ásgeirsverslun á heimastjórnarárunum.

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar