Myndbönd og fréttir

Sýning í Jónshúsi

Frá sýningunni í JónshúsiÍ tilefni 100 ára afmælis heimastjórnar ákvað Alþingi að endurbæta að nokkru þá sýningu sem uppi er í Jónshúsi í Kaupmannahöfn og fjallar fyrst og fremst um Jón Sigurðsson, ævi hans og störf. 

Umfjöllun var aukin um sjálfstæðisbaráttuna að Jóni Sigurðssyni gengnum og stærstu áfangana sem síðar unnust; heimastjórn 1904, fullveldi 1918 og loks stofnun lýðveldis 1944.

Frá sýningunni í JónshúsiEnn fremur sýning um Ingibjörgu, konu Jóns Sigurðssonar og þátt hennar í heimilishaldi við Austurvegg í því herbergi sem kallað hefur verið "eldhús Ingibjargar". Þar hefur vinnu-herbergi fræðimanns verið undanfarin ár, en flyst nú til í húsinu. 

Frá sýningunni í JónshúsiÞá eru munir úr safni Jóns Sigurðssonar, sem Þjóðminjasafn Íslands varðveitir, hafðir til sýningar í Jónshúsi.Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, hefur samið nýja sýningartexta og Björn G. Björnsson hannað útlit sýningarinnar.

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar