Myndbönd og fréttir

Hannes Hafstein og heimastjórnarárin í Eyjafirði

Sýning á munum og skjölum í Amtsbókasafninu á Akureyri

 Sýning á bókum, skjölum og munum sem tengjast Hannesi Hafstein og heimastjórnarárunum í Eyjafirði var opnuð í Amtsbókasafninu á Akureyri fimmtudaginn 18. mars. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, opnaði sýninguna.

 Á sýningunni voru bréf frá Hannesi sem ekki hafa áður komið fyrir sjónir almennings, ljóð skáldsins og ritdóma um ljóð hans. Einnig ýmis skjöl sem tengjast heimastjórnarárunum í Eyjafirði, munir og ljósmyndir frá þessum tíma.

Forsætisráðuneytið, menningarmálanefnd Akureyrar, Héraðsskjalasafnið á Akureyri og Amtsbókasafnið á Akureyri standa að sýningunni. Minjasafnið á Akureyri lagði til ýmsa muni. Sýningunni lýkur laugardaginn 17. apríl.

Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, flutti erindi um ævi Hannesar í Amtsbókasafninu. Hann vinnur nú að ritun bókar um ævi Hannesar Hafsteins.

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar