Myndbönd og fréttir

Málþing í Kaupmannahöfn 5. mars 2004

Í samstarfi við Alþingi Íslendinga, danska forsætisráðuneytið og danska þjóðþingið, Folkethinget, var haldin ráðstefna í Bryggjuhúsinu við Norðurbryggju í Kaupmannahöfn sem hafði yfirskriftina “ Hundrað ár frá heimstjórn – Danmörk og Ísland þá og nú “. 

Alls sóttu ráðstefnuna tæpleg 140 manns en fundarsalurinn rúmaði 120 manns og var þéttsetinn bekkurinn allan tímann en ráðstefnan hófst kl. 10.00 um morguninn og  lauk um 16.30.  Eftir ráðstefnuna bauð sendiherra Íslands, Þorsteinn Pálsson, til móttöku í nýju húsnæði sendirráðsins í sömu byggingu. 

Við upphaf ráðstefnunnar flutti Þorsteinn Pálsson, sendiherra.  Ráðstefnunni stýrðu forsetar þjóðþinganna, Halldór Blöndal og Christian Mejdahl og meðal ræðumanna voru forsætisráðherrar Íslands og Danmerkur, Davíð Oddsson og Anders Foch Rassmusen. 

Þetta er í fyrsta og eina skiptið á þeim hundrað árum sem liðin eru síðan Íslendingar fengu heimstjórn og í kjölfarið, fullveldi og sjálfstæði, sem fulltrúar beggja þjóðanna setjast niður og ræða söguna, einstaka þætti hennar svo og samninga og ákvarðanir sem teknar voru. 

Enginn vafi leikur á því að hér var afar áhugaverð ráðstefna skipulögð og einstaklega góð erindi flutt af öllum þeim sem til máls tóku.  Var það samdóma álit að allir ræðumenn hefðu lagt sig veruleg fram um að vanda til hvers erindis fyrir sig og gera sem best grein fyrir þeim viðhorfum sem fjallað var um hverju sinni. 

Meðfylgjandi er dagskrá ráðstefnunnar: 

Málþing í Kaupmannahöfn 5. mars 2004:

Hundrað ár frá heimastjórn –

Danmörk og Ísland þá og nú

09.00  Skráning og afhending gagna 

10.00  Ávarp 

Hr. Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í Danmörku  

10.05  Setning   

Hr. Halldór Blöndal, forseti Alþingis

Hr. Christian Mejdahl, forseti danska þjóðþingsins 

10.20  Ræður

 

Hr. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur

Hr. Davíð Oddsson, forsætisráðherra Íslands 

10.50   Kaffihlé 

11.10   Var farið rétt að?

Lagasetning um samband Íslands við Danmörku á 19. öld og byrjun 20. aldar; stöðulögin 1871, stjórnarskráin 1874, heimastjórn 1904, fullveldi 1918. 

Prófessor Henrik Zahle

Prófessor Sigurður Líndal 

Fyrirspurnir úr sal 10 mín. 

11.50  Samstarf þjóðþinganna þá og nú 

Lagasetning og samskipti þjóðþinganna um og eftir aldamótin 1900. Samskipti danska þjóðþingsins og Alþingis á nýrri öld. 

Hr. Christian Mejdahl, forseti danska þjóðþingsins

Hr. Halldór Blöndal, forseti Alþingis  

Fyrirspurnir úr sal í 10 mín. 

12.30  Hádegisverður 

13.40  Sjáum við söguna í réttu ljósi? 

Samskipti Íslendinga og Dana í Kaupmannahöfn á 19. öld og byrjun 20. aldar.  Afstaða Dana til Íslendinga og Íslendinga til Dana.  

Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur

Prófessor Kirsten Hastrup 

Fyrirspurnir úr sal 10 mín. 

14.20  Hafa Danir og Íslendingar týnt hvorir öðrum? 

Samband Dana og Íslendinga fyrr og nú.  Hvernig má efla samskipti þjóðanna?  

Johannes Møllehave, rithöfundur og prestur

Auður Hauksdóttir, dósent við Háskóla Íslands 

Fyrirspurnir úr sal í 10 mín.

 15.00  Pallborðsumræður

 Fr. Siv Friðleifsdóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda

Hr. Bertel Haarder, ráðherra innflytjenda og flótamanna

 15.50               Þingslit

 
Að lokinni dagskrá, kl.16.15, móttaka í sendiráði Íslands.

 Málþingið er haldið í húsnæði Íslands, Færeyja og Grænlands við Norðurbryggju.

Samstarfaðili í Kaupmannahöfn, DIS Congress Service, sími 0045.4492.4492.S

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar