Myndbönd og fréttir
Ritgerðasamkeppni framhaldsskólanemenda um heimastjórnartímann
Menntamálaráðherra afhenti verðlaun og viðurkenningar í Þjóðmenningarhúsi
Sjö framhaldsskólanemendur hlutu viðurkenningar í ritgerðarsamkeppni í tilefni 100 ára afmælis heimastjórnar, þar af þrír 100 þúsund króna verðlaun hver. Nemendur skrifuðu
um Heimastjórn á Íslandi, aðdraganda og afleiðingar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, afhenti verðlaunin í Þjóðmenningarhúsi í dag, laugardaginn 15. maí.
Þeir sem hlutu 100 þúsund króna verðlaun voru; Magnús Sigurðsson, Menntaskólanum í Reykjavík Sigurður Helgi Oddsson, Menntaskólanum á Akureyri og Kristín Svava
Tómasdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík: “Ritgerðin er hnitmiðuð samantekt á miklu efni og gott yfirlit meginatburða og sýnir höfundur góðan skilning á flóknu efni er varðar aðdraganda og afleiðingar heimastjórnar á Íslandi.”
Þeir sem hlutu viðurkenningar voru: Anna Björg Leifsdóttir, Framhaldsskólanum á Húsavík, Kristín Grímsdóttir, Menntaskólanum á Akureyri, Sigríður Katrín Magnúsdóttir, Menntaskólanum á Akureyri og Anna Njálsdóttir, Borgarholtsskóla.
Dómnefnd skipuðu: Tryggvi Gíslason, magister, formaður, Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir, íslenskukennari við Menntaskólann á Akureyri og Árni Indriðason, sögukennari við Menntaskólann í Reykjavík. Ritari nefndarinnar var Júlíus Hafstein.
Ritgerðirnar verða gefnar út í kilju.


