Myndbönd og fréttir
Forsætisráðherrar Íslands - ráðherrar Íslands og forsætisráðherrar í 100 ár.
Fyrsta eintak ritsins Forsætisráðherrar Íslands ? ráðherrar Íslands og forsætisráðherrar í 100 ár var afhent Davíð Oddssyni forsætisráðherra í Þjóðmenningarhúsi þriðjudaginn 14. september 2004. Ritið var gefið út í tilefni 100 ára afmælis heimastjórnar.
Á öldinni sem liðin er frá því Íslendingar fengu heimastjórn árið 1904 hafa 24 einstaklingar gegnt embætti Íslandsráðherra eða forsætisráðherra. Einn kafli er helgaður hverjum ráðherra, prýddur fjölda mynda. Tilgangurinn er að draga fram á einum stað heildstæða mynd af þessum forystumönnum þjóðarinnar; bakgrunni og hugsjónum, einkennum og helstu viðfangsefnum.
Kapp hefur verið lagt á að bókin sé aðgengileg almenningi fremur en þungt fræðirit. Ritnefnd skipuðu: Júlíus Hafstein formaður, Haraldur Ólafsson prófessor, Ingólfur Margeirsson blaðamaður, Jakob F. Ásgeirsson rihöfundur og Sigurður Líndal prófessor. Ritstjóri er Ólafur Teitur Guðnason blaðamaður.
Bókaútgáfan Hólar annaðist um útgáfuna. Þeir sem gengt hafa embætti Íslandsráðherra eða forsætisráðherra og höfundar efnis eru:
Hannes Hafstein: Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Björn Jónsson: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.
Kristján Jónsson: Dr. Jón Þ. Þór sagnfræðingur.
Sigurður Eggerz: Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir prófessor.
Einar Arnórsson: Dr. Ólafur Þ. Harðarson prófessor.
Jón Magnússon: Sigurður Líndal prófessor emeritus.
Jón Þorláksson: Björn Bjarnason dómsmálaráðherra.
Tryggvi Þórhallsson: Dr. Gunnar Helgi Kristinsson prófessor.
Ásgeir Ásgeirsson: Anna Ólafsdóttir Björnsson cand. mag.
Hermann Jónasson: Tryggvi Gíslason magister og fyrrverandi skólameistari.
Ólafur Thors: Jakob F. Ásgeirsson rithöfundur.
Björn Þórðarson: Guðmundur Magnússon sagnfræðingur.
Stefán Jóhann Stefánsson: Ingólfur Margeirsson blaðamaður.
Steingrímur Steinþórsson: Gerður Steinþórsdóttir cand. mag.
Emil Jónsson: Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur, dósent.
Bjarni Benediktsson: Dr. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur.
Jóhann Hafstein: Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður.
Ólafur Jóhannesson: Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor.
Geir Hallgrímsson: Jónína Michaelsdóttir blaðamaður.
Benedikt Gröndal: Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður.
Gunnar Thoroddsen: Dr. Jón Ormur Halldórsson dósent.
Steingrímur Hermannsson: Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri.
Þorsteinn Pálsson: Steinar J. Lúðvíksson ritstjóri.
Davíð Oddsson: Styrmir Gunnarsson ritstjóri.


