Myndbönd og fréttir

Minnisvarði um Hannes Hafstein afhjúpaður á Ísafirði

Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, afhjúpaði minnisvarða um Hannes Hafstein við Fischershús að Mánagötu 1 á Ísafirði, laugardaginn 17. janúar.

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Inga Ólafsdóttir formaður menningamálanefndar Ísafjarðar við afhjúpun minnisvarðans.Hannes Hafstein var fyrsti ráðherra Íslands en 1. febrúar næstkomandi eru 100 ár liðin frá því Íslendingar fengu heimastjórn. Þjóðin fagnar þá 100 ára afmæli íslenskrar stjórnskipunar.

Hannes Hafstein var skipaður sýslumaður árið 1895 en kom til Ísafjarðar vorið 1896. Hann bjó öll sýslumannsár sín í Fischershúsi og var þingmaður Ísfirðinga 1900-1901 en náði ekki kjörið árið 1902. Hann fór fram fyrir Eyfirðinga árið 1903, náði kjöri og varð Íslandsráðherra 1904.

Halldór Ásgrímsson þakkaði Ísfirðingum fyrir framtakið og fór með erindi úr aldamótaljóði skáldsins, þegar hann afhjúpaði minnisvarðann:

Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið,
boðorðið, hvar sem þér í fylking standið,
hvernig sem stríðið þá og þá er blandið,
það er: að elska, byggja og treysta á landið.

 Eftir afhjúpun minnisvarðans var fjölmenni við athöfn í Safnahúsinu. Lúðrasveit Ísafjarðar lék, Jónas Tómasson spilaði á þverflautu og Karlakórinn Ernir söng. Hátíðarkvöldverður var á Hótel Ísafirði, þar lék strengjasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar og Ingunn Ósk Sturludóttir frá Vigur söng.

 Mikill uppgangur var fyrir vestan í upphafi 20. aldar, Ísafjörður þriðji stærsti kaupstaður landsins. Starf sýslumanns var erilssamt og skáldinu gafst lítill tími til að yrkja, þó hann hafi ort aldamótaljóð sitt fyrir vestan. Hann skrifaði Matthíasi Jochumssyni 1899: “Ég yrki mjög lítið. Þó byrja ég oft á kvæðum, en klára þau sjaldan. Kvelst af því að hafa mörg járn í eldinum.” Hann segist oft hugsa um Galdra-Loft “... en sem víst aldrei kemst endanlega á pappír. Efnið er þungt, breytilegt, mystískt, díabolískt, sublimt ... Ég er orðinn púlsklár, kancellibikkja, dómsmálatrunta, mæðin og meidd í miðju baki ... Mikill er hann munur á duty og beauty, þótt orðin rími saman:

Hann lék sér fyrrum laus við geig,
við ljóð og söng – in beauty,
og lifði á ást og lindarveig
með lítilsháttar útí. 

Nú blæs hann þungt og bograst hann
og bölvar margri duty
og kýs sem bráðast kostinn þann
að hverfa – geiminn útí.

 Hannes Hafstein var átta ár á Ísafirði. Haustið 1899 markar upphaf  baráttu Íslendinga fyrir verndun landhelginnar þegar Hannes réri út að togaranum Royalist sem var að ólöglegum veiðum í Dýrafirði. Skipverjar höfðu í frammi ofbeldi sem lauk með því að þrír fylgdarmenn sýslumanns drukknuðu, en Hannes bjargaðist við illan leik ásamt tveimur mönnum. Minnisvarði um þennan atburð hefur verið reistur í landi Bessastaða í Dýrafirði.

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar