Myndbönd og fréttir

Myntbréf og frímerki í tilefni aldarafmælis heimastjórnar á Íslandi

Frímerki útgefið í tilefni hátíðarhaldanna
Íslandspóstur minntist aldarafmælis heimastjórnar á Íslandi með veglegri útgáfu frímerkja og myntbréfs þann 15. janúar síðastliðinn. Upphaf heimastjórnar 1904 er ásamt fullveldi á grundvelli konungssambands við Dani 1918 og stofnun íslenska lýðveldisins 1944 mikilvægasti áfanginn í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 20. öldinni. Í tilefni afmælisins komu út frímerki og smáörk með mynd af Hannesi Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands. Á smáörkinni var hvíti Íslandsfálkinn í silfurlit á bláum grunni. Fálkinn var skjaldarmerki Íslands frá 1903-1919. Þetta var í fyrsta sinn sem silfur var notað sem fimmti litur við prentun frímerkja á Íslandi. Verðgildi smáarkar og frímerkis er 150 krónur.

Einar Þorsteinsson afhendir Sturlu Böðvarssyni hátíðarútgáfu merkisins, Tryggvi Tryggvason hönnuður t.h.Þann 15. janúar gaf Íslandspóstur einnig út myntbréf með smáörkinni og sérsleginni mynt úr skírasilfri sem einnig er til minningar um stofnun heimastjórnar 1904. Myntbréf eru aðeins gefin út af sérstöku tilefni og í takmörkuðu upplagi. Þau eru tölusett og verðmæti þeirra eykst yfirleitt með tímanum. Á framhlið nýju myntarinnar er mynd af Hannesi Hafstein en Íslandsfálkinn er á bakhliðinni. Hannes Hafsteinn var einn af mikilhæfustu stjórnmálamönnum sem Íslendingar hafa átt og jafnframt eitt af fremstu skáldum Íslendinga.

Einar Þorsteinsson, forstjóri Íslandspósts, afhenti samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssyni, nýju frímerkin og myntbréfið að gjöf í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Myntbréf samgönguráðherra var tölusett nr. 1.

Myntbréfið í tilefni aldarafmælis heimastjórnar á Íslandi er fjórða bréfið í silfurmyntbréfasafni Íslandspósts. Fyrsta myntbréfið var gefið út árið 2000 í tilefni þess að 1000 ár voru liðin frá því að Leifur heppni fann Ameríku.

Tryggvi T. Tryggvason hannaði bæði frímerkin og silfurpeninginn.

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar