Myndbönd og fréttir
Sýningin Heimastjórn 1904 í Þjóðmenningarhúsi
1. febrúar 1904 markaði tímamót í sjálfstæðisbaráttu Íslands við Danmörku. Heimastjórn, fyrsta íslenska landsstjórnin, sem fór með sérmál Íslands í umboði Alþingis, var stofnuð og með henni komst á þingræði í landinu. Skjaldarmerki Íslands varð samkvæmt konungsúrskurði hvítur fálki á bláum feldi. Heimastjórnartímabilið náði til 1. desember 1918.
Á sýningunni, sem unnin er í samvinnu Þjóðmenningarhúss og Þjóðminjasafns Íslands, er dregin upp mynd af þeim framförum, bjartsýni og stórhug sem einkenndi líf þjóðarinnar á tímum heimastjórnar og gerð grein fyrir aðdraganda hennar. Þar fór fyrir fyrsti ráðherra landsins, Hannes Hafstein, stórbrotið ljóðskáld, sem með andagift sinni og stjórnmálasnilld fleytti þjóð sinni drjúgan spöl á þeirri sjálfstæðisbraut sem hafin var.
Áskriftarvefurinn Skólavefurinn ehf. gerir fræðslu- og margmiðlunarefni um sjálfstæðisbaráttuna og heimastjórnartímann sem er aðgengilegt á sýningunni. Efnið er hugsað sem fræðslubrunnur sem sækja má í fróðleik og skemmtiefni með myndskreyttum ljóðum, hreyfimyndum og fleira.
Þjóðmenningarhúsið gefur út sýningarskrá um heimastjórnina á þremur tungumálum; íslensku, dönsku og ensku. Hægt er að sækja sýningarskrána hér: Skráin er með pdf endingu og þarf Adobe Acrobat Reader til lestursins.
Frá 3. febrúar til 31. desember 2004
Sýningin Heimastjórn 1904 er sett upp í tilefni aldarafmælis heimstjórnar á Íslandi 2004.
Nánari upplýsingar á vef Þjóðmenningarhúss


