Myndbönd og fréttir

Skrifborð Hannesar Hafstein

Guðni Ágústsson og Guðríður Sigurðardóttir við afhendingu skrifborðs Hannesar HafsteinÞann 12. janúar 2004 afhenti Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, Þjóðmenningarhúsinu til varðveislu skrifborð Hannesar Hafstein, fyrsta íslenska ráðherrans.  Guðríður Sigurðardóttir, forstöðumaður Þjóðmenningarhúss tók við skrifborðinu en það er í anddyri á 1. hæð hússins.

Sveinbjörn Dagfinnsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri tók saman eftirfarandi um sögu borðsins: "Árið 1952 hóf ég störf í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.  Kynni mín og Gunnlaugs E. Briem hófust skömmu síðar, þegar málefni jarða í ríkiseigu voru færð þaðan í atvinnumálaráðuneytið þar sem Gunnlaugur var ráðuneytisstjóri.

 

Ég tók þegar eftir sérstæðu vinnuborði eða vinnupúlti Gunnlaugs.  Gunnlaugur hóf störf í stjórnarráðinu 1927 og þekkti því sögu þess. Sagði hann mér að borðið hefði verið keypt í ráðherratíð Hannesar Hafstein og að það hefði verið vinnuborð hans. Gunnlaugur vann við borðið allan sinn ráðuneytisstjóraferil 1947 - 1973. 

 

Þegar ég tók við starfi ráðuneytisstjóra eftir Gunnlaug var borðið orðið lúið og bar margvísleg merki langrar notkunar.  Ég kom borðinu í viðgerð, sem tókst mjög vel og vann síðan við það í allmörg ár.

 

Við flutning ráðuneytisins að Rauðarárstíg 25, vorið 1986, var húsgagnakostur að nokkru endurnýjaður og hætt að nota borðið við dagleg störf.  Borðið var þrátt fyrir það flutt þangað með öðrum munum ráðuneytisins og þurfti að hífa það í hlutum utan á húsinu til að koma því í húsnæði ráðuneytisins, sem var á 4. hæð.  Um þetta leit komst borðið á þjóðminjaskrá.

 

Borðið góða fylgdi enn landbúnaðarráðuneytinu þegar það flutti á Sölvhólsgötu 7 haustið 1994 og notaði Halldór Blöndal þáverandi landbúnaðarráðherra borðið skamman tíma. Síðan var því búinn heiðursstaður við ráðherraskrifstofu.

 

 Ánægjulegt er að borðinu hefur nú verið fundinn verðugur staður í Þjóðmenningarhúsinu og að fyrirhöfnin við varðveislu þess hefur skilað fullum árangri."

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar