Myndbönd og fréttir
Sólin gleymdi dagsins háttatíma
Leikarar fluttu brot úr leikritum, lásu ljóð og flyttu ýmsa texta frá árunum 1904 ? 1918 á hátíðarsýningu í Þjóðleikhúsinu 30. janúar.
Dagskráin nefndist – Sólin gleymdi dagsins háttatíma – sem er ljóðlína úr Fjalla Eyvindi eftir Jóhann Sigurjónsson. Mikil gróska var í listum á heimastjórnartímanum. Auk Jóhanns sömdu Guðmundur Kamban og Einar H Kvaran hvert leikritið af öðru og Matthías Jochumsson og Indriði Einarson skrifuðu nýjar útgáfur af Útilegumönnunum og Nýársnóttinni.
Bylting varð í íslenskri ljóðagerð og tónskáldin sömdu lög við kvæði þjóðskáldanna. Söngmenntir blómguðust og Íslendingar lærðu að spila á hljóðfæri og dansa. Einar Jónsson, Ásgrímur Jónsson og Jóhannes Sveinsson Kjarval héldu sínar fyrstu sýningar og kvikmyndir heilluðu alþýðu fólks.
Flytjendur voru leikararnir:
Anna Kristín Arngrímsdóttir
Arnar Jónsson
Baldur Trausti Hreinsson
Björgvin Frans Gíslason
Halldóra Björnsdóttir
Hjalti Rögnvaldsson
Jóhann Sigurðarson
Kristbjörg Kjeld
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
Ragnheiður Steindórsdóttir
Sigurður Skúlason
Sólveig Arnarsdóttir
Tinna Gunnlaugsdóttir.
Dagskrárgerð var í höndum Þórhalls Sigurðssonar og Guðjóns Friðrikssonar.
Jóhann G. Jóhannsson stjórnaði tónlistarflutningi og umsjón með dagskránni hafði Þórhallur Sigurðsson.


