Myndbönd og fréttir

Forsætisráðherra lagði blómsveig að leiði ráðherra

Davíð Oddson leggur blómsveig að leiði Ragnheiðar og Hannesar HafsteinDavíð Oddsson, forsætisráðherra, lagði blómsveig að leiði Hannesar Hafstein og eiginkonu hans, Ragnheiðar Hafstein í kirkjugarðinum við Suðurgötu 1. febrúar síðastliðinn í tilefni þess að 100 ár voru liðin frá því þjóðin fékk heimastjórn. Fjölmenni var í kirkjugarðinum og félagar í Karlakór Reykjavíkur sungu.

Um leið og ráðherra lagði áherslu á að persónudýrkun væri ekki við hæfi, þá sagði hann það mikla giftu að mikilhæfur maður hefði sest í embætti ráðherra með heimastjórn 1904. Hannes Hafstein hefði verið farsæll í starfi, átt stóran þátt í hve giftusamlega heimastjórnin tókst og verið stökkpallur til fullveldis 1918 og sjálfstæðis 1944.

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar