Myndbönd og fréttir

Saga Stjórnarráðs Íslands 1964-2004 afhent í Þjóðmenningarhúsinu

Frá útgáfu bókar um Stjórnarráð ÍslandsBjörn Bjarnason, dómsmálaráðherra, afhenti forsætisráðherra Davíð Oddssyni fyrstu bindi sögu Stjórnarráðs Íslands 1964-2004 í tilefni 100 ára afmælis heimastjórnar á Íslandi þann 1. febrúar síðastliðinn. Þrjú bindi koma út á árinu og voru tvö fyrri bindin afhent ráðherra. Agnar Klemens Jónsson skrifaði sögu stjórnarráðsins 1904-1964 og er hið nýja verk framhald þess.

Um sögu Stjórnarráðs Íslands 1964-2004.

 

Í fyrsta bindi ritsins er rætt um stjórnskipunarlega stöðu Stjórnarráðsins. Gefið er yfirlit um þróun þess frá stofnun og fram til setningar stjórnarráðslaganna árið 1969 og hvernig Stjórnarráðið hefur þróast síðan. Í þessum hluta er einnig fjallað um sögu allra ráðuneyta, tilurð þeirra og helstu verkefni og á hvern hátt hlutverk þeirra hefur breyst. Gerð er grein fyrir hlut Stjórnarráðsins í lagasetningu og stjórnarframkvæmd og vikið að því hvernig kröfur um vönduð vinnubrögð í starfsemi Stjórnarráðsins hafa aukist. Einnig er rætt um starfsmenn Stjórnarráðsins, réttindi þeirra og skyldur og fjallað um skjalavörslu og húsakost þess.

Aðalhöfundar þessa hluta eru Ásmundur Helgason og Ómar H. Kristmundsson. Í öðru og þriðja bindi er fjallað um sögu ríkisstjórna á tímabilinu frá 1964–2004 og helstu framkvæmdir þeirra. Höfundar annars bindis eru Ólafur Rastrick og Sumarliði R. Ísleifsson og fjalla þeir um viðreisnarárin og til 1983.

Höfundar þriðja bindis eru Sigríður Þorgrímsdóttir og Jakob F. Ásgeirsson og fjalla þau um árin frá 1983–2004. Í þessum hlutum ritsins er fjallað um stjórnmálaþróun, stjórnarmyndanir og ríkisstjórnir á tímabilinu, um samskipti innan ríkisstjórna, og rætt um helstu viðfangsefni þeirra. Í lok þriðja bindisins er skrá um ráðherra í Stjórnarráði Íslands frá 1964–2004, ráðuneytisstjóra og aðstoðarmenn ráðherra. Í ritunum eru mörg hundruð myndir sem margar hverjar hafa ekki birst áður.

 
 

Leita:



 

 
efnisyfirlit síðunnar