Myndbönd og fréttir
Hvar liggur valdið?
Föstudaginn 6. febrúar s.l. efndu forsætisráðuneytið og Háskóli Íslands, Lagastofnun og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála til ráðstefnu í tilefni af aldarafmæli heimastjórnar og þingræðis á Íslandi. Hér er hægt að hlusta á upptöku af ráðstefnunni.
Fyrsti hluti
Annar hluti
Þriðji hluti
Fjórði hluti
Þegar Stjórnarráð Íslands var sett á stofn og íslenskur ráðherra, búsettur hér á landi, tók við embætti 1. febrúar 1904 var það meirihluti Alþingis sem réð því, í fyrsta sinn, hver gegndi því ráðherraembætti, sem málefni Íslands heyrðu undir. Þingræðið er því jafn gamalt heimastjórninni og efnt er til ráðstefnunnar í tilefni þess. Viðfangsefni hennar er samskipti þingsins og framkvæmdarvaldsins. Hver eru áhrif þingsins á stjórnsýslu ríkisins? Hver er hlutdeild framkvæmdarvaldsins í löggjafarvaldinu? Til samanburðar verður fjallað um þróun þingræðis í Danmörku. Að erindum afloknum munu fulltrúar hins pólitíska lífs velta því fyrir sér hvort valdið hafi færst frá Alþingi hin síðari ár yfir til stjórnsýslunnar eða öfugt.


